![]() |
| Velkomin á minningarsíðu Daða Snæs |
|
|
Um mig:
Litli drengurinn okkar kom í heiminn þann 31. maí árið 2005 og var 3795 gr. eða rúmar 15 merkur og 50 cm. Hann var gleðigjafinn okkar í tæpa 8 mánuði en þann 24. janúar 2006 lést hann. Móðir Daða Snæs er Katrín Helga, pabbi hans er Arnþór Hinrik og á hann eina stóra systir sem heitir Birgitta Dögg og lítinn bróðir sem heitir Daníel Smári. Daði Snær var einstaklega brosmildur og kátur lítill drengur og fannst stóra systir sín skemmtilegust í heimi. Hann gat skellihlegið af henni daginn út og daginn inn :-) Honum fannst einstaklega gaman að vera í göngugrindinni sinni og tæta í fjarstýringum og öðru dóti um allt. Litli sólargeislinn okkar verður hjá okkur í huganum um ókomna tíð.
|
|
|
Annað:
Vér þökkum barnið blíða, með bjarta svipinn, fríða, þá góðu lífsins gjöf. Þú sveinninn, ljúfur lifir, og ljós Guðs skín þér yfir. Ei líf og andi er lagt í gröf. G.Þ.
Ó blíði Jesú blessa þú það barn, er vér þér færum nú, tak það í faðm og blítt það ber með börnum Guðs, á örmum þér. V.B.
Birgitta Dögg stóra systir
|
| Þú ert gestur nr. 66379 |